5.7.2007 | 22:23
Dásamlegir dagar
Veðurblíðan leikur aldeilis við okkur þessa dagana. Maður kann bara varla á þetta. Við skötuhjúin erum búin að njóta lífsins og vera mikið í Krikanum. Í gær fór minn heittelskaði á Viktoríu ásamt Kidda Guðjóns á skutlunni sinni héðan úr fossvoginum og alla leið upp í Krika. Þetta var eitthvað búið að vaxa Erni í augum en þegar Kiddi kom í vikunni uppeftir héldu mínum engin bönd.
55 mínútum seinna voru þeir komnir berir að ofan og alsælir uppeftir. Stoltir strákar. Við Hekla lulluðum í sólbaði og að venju fylltist allt af góðu fólki.
Hekla ákvað á endanum að kæla sig aðeins niður og fór að vaða í Elliðavatni. Fleiri myndir hér
Athugasemdir
þetta hefur verið æðislegur dagur, og ég segi ekki að hafa Kristinn með í för hefur ekki verið leiðinlegt, bið kærlega að heilsa honum :) hann ætti að muna eftir mér frá Reykjalundi.
Helga Auðunsdóttir, 5.7.2007 kl. 22:54
Dásamlegar myndir Ása, þetta hefur verið góður dagur. Bið að heilsa Erni.
Vilborg Valgarðsdóttir, 5.7.2007 kl. 23:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.