2.2.2008 | 00:48
einmitt
Hjúkk hvað tíminn líður hratt 2 feb. 2008...... Vá
Dagurinn í dag fór í ýmislegt Halastúss fyrripartinn og Hjólastólasveitarfund og æfingu seinnipartinn. Smá öl í kvöld og fabúlerað með leikstjóranum. Hrikalega er gaman að vera til þessa dagana þó sé ég óveðursský á lofti úr austri. En það leysist eins og annað.
Búin með sögu úkraníska traktorsins :-) Hrikalega flott nafn á bók.
Smá Photoshop og svo kennsla gegnum msn þar sem mín ástkæra dóttir kenndi mér það sem ég þarf svo að kenna næsta.
Fengum hrikalega flotta grafík fyrir Hjólastólasveitina í kvöld, hlakka til að sýna ykkur hana. Vonandi um helgina.
Athugasemdir
Ertu að segja samkvæmt bloggi þínu 22.1.2008 að hjólastólasveitin sé búin að kljúfa sig frá Halaleikhópnum?
Árni Sal. (IP-tala skráð) 3.2.2008 kl. 03:53
Knús til þín
Svava frá Strandbergi , 3.2.2008 kl. 14:27
Innlitskvitt.
Ásdís Sigurðardóttir, 3.2.2008 kl. 20:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.